Bahamaeyjar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bahamaeyjar eru eyríki á eyjaklasa sem telur um 700 eyjar og sandrif í Atlantshafi, rétt austan við Flórídaskaga í Bandaríkjunum, fyrir norðan Kúbu og Hispaníólu og vestan við Turks- og Caicoseyjar sem tilheyra sama eyjaklasa.
Samveldið Bahamaeyjar | |
Commonwealth of the Bahamas | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Forward Upward Onward Together (enska) Fram á við, upp á við, áfram saman | |
Þjóðsöngur: March On, Bahamaland | |
Höfuðborg | Nassá |
Opinbert tungumál | enska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Karl 3. |
Landstjóri | Cornelius A. Smith |
Forsætisráðherra | Philip Davis |
Sjálfstæði | |
• frá Bretlandi | 10. júlí 1973 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
155. sæti 13.878 km² 28 |
Mannfjöldi • Samtals (2022) • Þéttleiki byggðar |
177. sæti 400.516 25,21/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2022 |
• Samtals | 16,130 millj. dala (148. sæti) |
• Á mann | 40.274 dalir (40. sæti) |
VÞL (2021) | 0.811 (55. sæti) |
Gjaldmiðill | bahamaeyjadalur (BSD) |
Tímabelti | UTC-5 (-4 á sumrin) |
Þjóðarlén | .bs |
Landsnúmer | +1-242 |
Upphaflega voru eyjarnar byggðar Lúkíum (Aravökum). Talið er að Kristófer Kólumbus hafi fyrst lent í Nýja heiminum á eyjunni San Salvador í eyjaklasanum en Spánverjar stofnuðu aldrei nýlendu á eyjunum. Þeir rændu þó fólki þaðan sem þeir seldu í þrældóm á Hispaníólu. Árið 1648 settust enskir landnemar frá Bermúda að á eyjunni Eleuthera. Eyjarnar voru griðastaður sjóræningja þar til þær urðu bresk krúnunýlenda árið 1718. Eftir Sjálfstæðisstríð Bandaríkjanna flutti breska stjórnin marga konungssinna til Bahamaeyja þar sem þeir fengu landareignir og hófu plantekrubúskap. Eftir að Bretar gerðu þrælahald ólöglegt flutti Breski flotinn þræla sem þeir höfðu frelsað af þrælaskipum í Atlantshafi til eyjanna. Þangað flúðu líka svartir þrælar frá Flórída. Árið 1973 urðu eyjarnar sjálfstætt ríki innan Breska samveldisins með Bretadrottningu sem þjóðhöfðingja.
Bahamaeyjar eru eitt af auðugustu ríkjum Ameríku þegar miðað er við verga landsframleiðslu á mann. Ferðaþjónusta stendur ein undir 60% af vergri landsframleiðslu Bahamaeyja. Fjármálaþjónusta er um 15% af landsframleiðslu. 70% íbúa búa á eyjunni New Providence þar sem höfuðborgin Nassá stendur. New Providence heyrir undir ríkisstjórn eyjanna.