Commodus
From Wikipedia, the free encyclopedia
Lucius Aurelius Commodus Antoninus (31. ágúst, 161 – 31. desember, 192) var keisari Rómaveldis á árunum 177 til 192.
Commodus | |
Rómverskur keisari | |
Valdatími | 177 – 192 með Markúsi Árelíusi (177 – 180) |
---|---|
Fæddur: |
31. ágúst 161 í Lanuvium |
Dáinn: |
31. desember 192 í Róm |
Forveri | Markús Árelíus |
Eftirmaður | Pertinax |
Maki/makar | Bruttia Crispina |
Faðir | Márkús Árelíus |
Móðir | Faustina yngri |
Fæðingarnafn | Lucius Aurelius Commodus |
Keisaranafn | Caesar Marcus Aurelius Commodus Antoninus Augustus |
Ætt | Antónínska ættin |
Commodus var sonur Markúsar Árelíusar keisara og Faustinu yngri. Commodus fékk titilinn augustus árið 177 og var lýstur keisari ásamt föður sínum. Þegar Markús Árelíus lést svo árið 180 varð Commodus einn keisari.
Allar götur síðan Nerva kaus Trajanus sem kjörson sinn og eftirmann, höfðu keisarar farið að hans fordæmi og valið þann eftimann sem þeim þótti hæfastur til að gegna stöðu keisara. Commodus var því fyrsti keisarinn síðan á tíma flavísku ættarinnar sem erfði keisaratitilinn. Tími kjörkeisaranna (96 - 180) hafði verið með friðsælustu og blómlegustu tímabilum í sögu Rómaveldis og hafa þeir verið kallaðir góðu keisararnir fimm. Síðari tíma sagnfræðingar hafa margir álitið að með Commodusi hafi hnignun Rómaveldis hafist og að Rómarfriði hafi lokið á hans valdatíma. Ríkinu var þó ekki ógnað af utanaðkomandi óvinum heldur var það pólitískur óstöðugleiki sem jókst á þessum tíma.