Neil Armstrong
Bandarískur geimfari og fyrsti maðurinn á tunglinu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Neil Armstrong (5. ágúst 1930 – 25. ágúst 2012) var bandarískur geimfari og flugmaður. Hann er þekktastur fyrir að vera fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið. Það gerði hann í annarri og síðustu geimferð sinni, með Apollo 11 þann 20. júlí 1969. Hann varði, ásamt Buzz Aldrin tveimur og hálfri klukkustund á yfirborði tunglsins á meðan Michael Collins var á sporbraut fyrir ofan.