Sameinuðu þjóðirnar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sameinuðu þjóðirnar eru alþjóðasamtök stofnuð 1945 sem nú hafa 193 aðildarríki. Öll almennt viðurkennd sjálfstæð ríki í heiminum, að Vatíkaninu undanskildu, eru nú meðlimir. Vatíkanið á eina varanlega áheyrnarfulltrúann og getur sóst eftir fullri aðild ef það kýs svo. Höfuðstöðvar samtakanna eru í New York-borg, þar sem aðildarríkin koma saman á reglulegum fundum til að taka ákvarðanir um margs konar mál sem samtökin koma að. Samtökin reka aukahöfuðstöðvar í Genf, Naíróbí og Vínarborg, auk Haag þar sem Alþjóðadómstóllinn er.
Sameinuðu þjóðirnar | |
---|---|
Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna. | |
Skammstöfun | SÞ (íslenska); UN (enska) |
Undanfari | Þjóðabandalagið |
Stofnun | Sem hernaðarbandalag: 1. janúar 1942 Sem alþjóðasamtök: 24. október 1945 |
Gerð | Milliríkjastofnun |
Höfuðstöðvar | New York-borg, Bandaríkjunum |
Meðlimir | 193 ríki; 2 áheyrnarríki |
Opinber tungumál | Arabíska, enska, franska, kínverska, rússneska og spænska |
Aðalritari | António Guterres |
Vefsíða | www.un.org www.unric.org/is |
Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar eftir lok síðari heimsstyrjaldar af sigurvegurum stríðsins í þeirri von að samtökin myndu koma í veg fyrir frekari stríð í framtíðinni vegna sameiginlegra öryggishagsmuna aðildarríkja. Núverandi uppbygging samtakanna ber vott um þær aðstæður sem uppi voru þegar þau voru stofnuð; sérstaklega sér þeirra stað í Öryggisráðinu, þar sem fimm ríki hafa fast sæti og neitunarvald. Þau eru: Alþýðulýðveldið Kína (leysti af hólmi Lýðveldið Kína), Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Rússland (leysti af hólmi Sovétríkin).
Sameinuðu þjóðirnar skiptast í sex stofnanir: allsherjarþingið, öryggisráðið, efnahags- og félagsmálaráðið, gæsluverndarráðið, aðalskrifstofuna og alþjóðadómstólinn. Að auki eru fjölmargar undirstofnanir, áætlanir og sjóðir; til dæmis Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, Alþjóðabankastofnanirnar og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðleg félagasamtök geta haft formlegt ráðgjafarhlutverk gagnvart Sameinuðu þjóðunum eða undirstofnunum þeirra.
Valdamesti og mest áberandi embættismaður Sameinuðu þjóðanna er aðalritarinn sem nú er portúgalski stjórnmálamaðurinn og diplómatinn António Guterres. Hann tók við embættinu 1. janúar 2017 og var endurkjörinn 8. júní 2021. Samtökin eru fjármögnuð með fjárframlögum frá aðildarríkjum.
Sameinuðu þjóðirnar, starfsmenn og undirstofnanir þeirra, hafa nokkrum sinnum unnið friðarverðlaun Nóbels þótt skoðanir séu skiptar um áhrifamátt þeirra. Margir telja Sameinuðu þjóðirnar mikilvægar fyrir frið og þróunarstarf, meðan aðrir telja samtökin áhrifalítil, hlutdræg og spillt.