Spánn
land í Suðvestur-Evrópu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Spánn (spænska: España; katalónska Espanya; baskneska Espainia) er konungsríki á Íberíuskaga í Suðvestur-Evrópu. Hið opinbera heiti landsins er Konungsríkið Spánn (Reino de España). Lönd sem liggja að Spáni eru Portúgal að vestan og Frakkland að norðan. Auk þess er örríkið Andorra í Pýreneafjöllum á landamærum Spánar og Frakklands. Syðst á Spáni er kletturinn Gíbraltar, sem er lítið landsvæði undir yfirráðum Breta. Að norðaustan liggur Biskajaflói að Spáni, Atlantshafið að suðvestan og að sunnan er Gíbraltarsund og svo Miðjarðarhafið að suðaustan og austan. Syðsti oddi Spánar er jafnframt syðsti oddi meginlands Evrópu. Spáni tilheyra Baleareyjar í Miðjarðarhafi (Majorka, Menorka og Íbísa), Kanaríeyjar í Atlantshafi og útlendurnar Ceuta og Melilla í Norður-Afríku.
Konungsríkið Spánn | |
Reino de España | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Plus Ultra (latína) Áfram lengra | |
Þjóðsöngur: Marcha Real | |
Höfuðborg | Madríd |
Opinbert tungumál | spænska (kastillíska) (katalónska, baskneska og galisíska eru einnig opinber tungumál í sumum héruðum.) |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Filippus 6. |
Forsætisráðherra | Pedro Sánchez |
Stofnun | |
• Sameining | 1479 |
• í reynd | 1516 |
• formleg | 1715 |
Evrópusambandsaðild | 1. janúar 1986 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
51. sæti 505.990 km² 0,89 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
30. sæti 47.450.795 94/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 1.942 millj. dala (15. sæti) |
• Á mann | 41.736 dalir (32. sæti) |
VÞL (2019) | 0.904 (25. sæti) |
Gjaldmiðill | evra (€) (EUR) |
Tímabelti | UTC+1 (+2 á sumrin) |
Þjóðarlén | .es |
Landsnúmer | +34 |
Spánn er rúmlega 505 þúsund ferkílómetrar að flatarmáli eða um það bil fimm sinnum stærra en Ísland. Á Spáni búa um 46 milljónir manna. Stærstu borgir Spánar eru höfuðborgin, Madrid og Barcelona. Í Madríd búa um 5,5 milljónir manna og tæpar fimm milljónir í Barselóna. Spánn er fornfrægt menningarríki. Arabar og Berbar lögðu hluta af Spáni undir sig á miðöldum og voru þar kallaðir Márar. Miklar minjar eru um dvöl þeirra á Spáni, meðal annars Alhambrahöllin. Barselóna þykir mjög athyglisverð fyrir nútímabyggingarlist og ber þar helst að nefna Antoni Gaudí en byggingar hans eru víða í borginni.
Spánn var einræðisríki undir stjórn Franciscos Franco einræðisherra frá 1939 til 1975. Jóhann Karl 1. var konungur Spánar frá 1975 til 2014. Núverandi konungur er Filippus 6.