Vladímír Pútín
Forseti Rússlands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vladímír Vladímírovítsj Pútín (rússneska: Владимир Владимирович Путин; f. 7. október 1952) er annar forseti Rússlands.
Vladímír Pútín Владимир Путин | |
---|---|
Forseti Rússlands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 7. maí 2012 | |
Forsætisráðherra | Dmítríj Medvedev Míkhaíl Míshústín |
Forveri | Dmítríj Medvedev |
Í embætti 31. desember 1999 – 7. maí 2008 | |
Forsætisráðherra | Míkhaíl Kasjanov Míkhaíl Fradkov Víktor Zúbkov |
Forveri | Borís Jeltsín |
Eftirmaður | Dmítríj Medvedev |
Forsætisráðherra Rússlands | |
Í embætti 15. ágúst 1999 – 7. maí 2000 | |
Forseti | Borís Jeltsín |
Forveri | Sergej Stepashín |
Eftirmaður | Míkhaíl Kasjanov |
Í embætti 8. maí 2008 – 7. maí 2012 | |
Forseti | Dmítríj Medvedev |
Forveri | Víktor Zúbkov |
Eftirmaður | Dmítríj Medvedev |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 7. október 1952 (1952-10-07) (71 árs) Leníngrad, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Þjóðerni | Rússneskur |
Stjórnmálaflokkur | Sameinað Rússland |
Maki | Ljúdmíla Pútína (gift 1983; skilin 2014) |
Börn | María (f. 1985) og Jekaterína (f. 1986). |
Bústaður | Kreml, Moskvu |
Háskóli | Ríkisháskólinn í Sankti Pétursborg |
Starf | Leyniþjónustumaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Hann útskrifaðist frá lögfræðideild Ríkisháskólans í Leníngrad árið 1975 og hóf störf hjá KGB. Á árunum 1985-1990 starfaði hann í Austur-Þýskalandi. Frá árinu 1990 gegndi hann ýmsum embættum, meðal annars í Ríkisháskólanum í Leníngrad, borgarstjórn Sankti Pétursborgar og frá 1996 hjá stjórnvöldum í Kreml. Í júlí 1998 var hann skipaður yfirmaður FSB (arftaka KGB) og frá mars 1999 var hann samtímis ritari Öryggisráðs rússneska sambandslýðveldisins. Frá 31. desember 1999 var hann settur forseti rússneska sambandslýðveldisins en 26. mars 2000 var hann kosinn forseti. Hann var endurkjörinn 14. mars 2004. Hann varð forsætisráðherra frá 2008 til 2012 og var síðan aftur kjörinn forseti árin 2012, 2018 og 2024.
Vladímír Pútín talar auk rússnesku, þýsku og ensku. Hann var giftur Ljúdmílu Aleksandrovnu Pútínu til ársins 2014. Þau eiga saman tvær dætur, Maríu (f. 1985) og Jekaterínu (f. 1986).