Abdrabbuh Mansur Hadi
Forseti Jemen / From Wikipedia, the free encyclopedia
Abdrabbuh Mansur Hadi (f. 1. september 1945) er jemenskur stjórnmálamaður og fyrrum herforingi sem naut alþjóðlegrar viðurkenningar sem forseti Jemen. Hadi tók við embætti forseta landsins í kjölfar jasmínbyltingarinnar árið 2012 og gegndi því til ársins 2022 að orðinu til en eiginleg völd hans voru þá orðin lítil sem engin vegna yfirstandandi borgarastyrjaldar í landinu. Þar sem bæði höfuðborgin Sana og önnur stærsta borgin, Aden, hafa fallið í hendur uppreisnarmanna hafði Hadi aðsetur í Ríad í boði sádi-arabískra bandamanna sinna. Hadi sagði af sér sem forseti í apríl 2022 og framseldi vald sitt sérstöku leiðtogaráði.
Staðreyndir strax Forseti Jemen, Forsætisráðherra ...
Abdrabbuh Mansur Hadi عبدربه منصور هادي | |
---|---|
Forseti Jemen | |
Í embætti 27. febrúar 2012 – 7. apríl 2022 | |
Forsætisráðherra | Ali Muhammad Mujawar Mohammed Basindawa Khaled Bahah Ahmed Obaid Bin Dagher Maeen Abdulmalik Saeed |
Varaforseti | Khaled Bahah Ali Mohsen al-Ahmar |
Forveri | Ali Abdullah Saleh |
Eftirmaður | Rashad al-Alimi (sem formaður leiðtogaráðs) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 1. september 1945 (1945-09-01) (78 ára) Abyan, Adennýlendunni (nú Jemen) |
Stjórnmálaflokkur | Alþýðufylkingin |
Starf | Hermaður, stjórnmálamaður |
Loka