Abkasía
From Wikipedia, the free encyclopedia
Abkasía (abkasíska: Аҧсны, Apsny; georgíska: აფხაზეთი, Apkhazeti eða Abkhazeti; rússneska: Абха́зия, Abkasíja) er ríki við austurströnd Svartahafs, sunnan við Stór-Kákasus, í norðausturhluta Georgíu. Það er 8.660 ferkílómetrar að stærð og íbúar eru um 240.000. Höfuðborg Abkasíu er Súkúmí. Abkasía nýtur takmarkaðrar alþjóðlegrar viðurkenningar. Árið 2008 tók Rússland upp stjórnmálasamstarf við Abkasíu. Síðan þá hafa Níkaragva, Venesúela, Nárú og Sýrland bæst í hóp ríkja sem viðurkenna sjálfstæði Abkasíu.
Аҧсны́ Apsny (abkasíska) Абхазия Abkasíja (rússneska) აფხაზეთი Apkhazeti (georgíska) | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: ekkert | |
Þjóðsöngur: Аиааира | |
Höfuðborg | Súkúmí |
Opinbert tungumál | abkasíska, rússneska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti Forsætisráðherra |
Raul Khadjimba Valeri Bganba |
Sjálfstæði frá Georgíu | |
• yfirlýst | 23. júlí 1992 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
*. sæti 8.660 km² ? |
Mannfjöldi • Samtals (2015) • Þéttleiki byggðar |
*. sæti 243.206 28/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2010 |
• Samtals | 0,682 millj. dala (*. sæti) |
• Á mann | 3.000 dalir (*. sæti) |
Gjaldmiðill | apsar, rúbla |
Tímabelti | UTC+4 |
Þjóðarlén | .ge |
Landsnúmer | ++840 |
Samkvæmt stjórn Georgíu og flestum öðrum löndum heims er Abkasía sjálfstjórnarhérað í Georgíu. Staða Abkasíu er meginástæða átaka Georgíu og Abkasíu sem hafa staðið frá upplausn Sovétríkjanna 1991. Stríðið um Abkasíu 1992-1993 var afleiðing af vaxandi spennu milli abkasa og Georgíumanna. Því lauk með því að Georgía missti yfirráð yfir héraðinu þar sem þjóðernishreinsanir fóru fram. Síðan þá hafa átök blossað reglulega upp. Þegar stríð Rússlands og Georgíu stóð yfir í ágúst 2008 börðust abkasar við her Georgíu. Það leiddi til þess að Rússland viðurkenndi Abkasíu opinberlega. Georgía og mörg önnur ríki líta svo á að Abkasía sé í raun hernumin af rússneska hernum.
Ásamt Transnistríu, Suður-Ossetíu og Nagornó-Karabak, er Abkasía oft nefnd sem dæmi um „frosin átök“ innan fyrrum Sovétlýðvelda. Þessi fjögur ríki eiga með sér margvíslegt samstarf og styðja hvert annað.