António Guterres
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna / From Wikipedia, the free encyclopedia
António Manuel de Oliveira Guterres (f. 30. apríl 1949) er portúgalskur stjórnmálamaður og erindreki sem er níundi og núverandi aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Áður var hann forstjóri Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) frá júní 2005 til desember 2015.[1]
Staðreyndir strax Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Forveri ...
António Guterres | |
---|---|
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna | |
Núverandi | |
Tók við embætti 1. janúar 2017 | |
Forveri | Ban Ki-moon |
Forsætisráðherra Portúgals | |
Í embætti 28. október 1995 – 6. apríl 2002 | |
Forseti | Mário Soares Jorge Sampaio |
Forveri | Aníbal Cavaco Silva |
Eftirmaður | José Manuel Barroso |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 30. apríl 1949 (1949-04-30) (75 ára) Lissabon, Portúgal |
Þjóðerni | Portúgalskur |
Stjórnmálaflokkur | Sósíalistaflokkurinn |
Maki | Luísa Guimarães e Melo (g. 1972; d. 1998) Catarina Vaz Pinto (g. 2001) |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Börn | 2 |
Háskóli | Instituto Superior Técnico |
Starf | Stjórnmálamaður, ríkiserindreki |
Undirskrift |
Loka
Guterres var forsætisráðherra Portúgals frá 1995 til 2002 og formaður portúgalska sósíalistaflokksins frá 1992 til 2002. Hann var einnig forseti Alþjóðasambands jafnaðarmanna frá 1995 til 2005.