Anwar Sadat
3. forseti Egyptalands (1918-1981) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mohamed Anwar al-Sadat (arabíska: محمد أنور السادات Muḥammad Anwar al-Sādāt) (25. desember 1918 – 6. október 1981) var þriðji forseti Egyptalands.
Anwar Sadat محمد أنور السادات | |
---|---|
Forseti Egyptalands | |
Í embætti 28. september 1970 – 6. október 1981 | |
Forsætisráðherra | Listi
|
Varaforseti | Listi
|
Forveri | Gamal Abdel Nasser |
Eftirmaður | Hosni Mubarak |
Forsætisráðherra Egyptalands | |
Í embætti 15. maí 1980 – 6. október 1981 | |
Forseti | Hann sjálfur |
Forveri | Mustafa Khalil |
Eftirmaður | Hosni Mubarak |
Í embætti 26. mars 1973 – 26. september 1974 | |
Forseti | Hann sjálfur |
Forveri | Aziz Sedki |
Eftirmaður | Abd El Aziz Muhammad Hegazi |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. desember 1918 Monufía, Egyptalandi |
Látinn | 6. október 1981 (62 ára) Kaíró, Egyptalandi |
Dánarorsök | Myrtur |
Stjórnmálaflokkur | Arabíska sósíalistabandalagið |
Maki | Eqbal Afifi (Madi) Jehan Sadat |
Börn | 7 |
Háskóli | Alexandríuháskóli |
Starf | Herforingi, stjórnmálamaður |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1978) |
Undirskrift |
Sadat tók við völdum eftir dauða Gamals Abdel Nasser árið 1970. Hann leiddi Egyptaland í Jom kippúr-stríðinu gegn Ísrael árið 1973, sem jók mjög hróður hans meðal Egypta og Araba. Eftir stríðið hóf hann hins vegar friðarviðræður við Ísrael sem leiddu til þess að skrifað var undir Camp David-samkomulagið árið 1978, en með því viðurkenndu Egyptar sjálfstæði Ísraels og fengu í staðinn aftur yfirráð yfir Sínaískaga, sem Ísraelar höfðu hertekið í sex daga stríðinu 1967. Sadat hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1978 ásamt Menachem Begin, forsætisráðherra Ísraels, fyrir að skrifa undir samkomulagið.
Sadat var myrtur árið 1981 meðan hersýning stóð yfir af öfgamönnum sem voru mótfallnir friðarsamkomulagi hans við Ísraela.