Augustus FitzRoy, hertogi af Grafton
From Wikipedia, the free encyclopedia
Augustus Henry FitzRoy, þriðji hertoginn af Grafton, (28. september 1735 – 14. mars 1811), kallaður jarlinn af Euston frá 1747 til 1757, var breskur stjórnmálamaður úr röðum Vigga. Hann er einn af fáum hertogum sem hafa verið forsætisráðherra Bretlands.
Staðreyndir strax Hertoginn af Grafton, Forsætisráðherra Bretlands ...
Hertoginn af Grafton | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 14. október 1768 – 28. janúar 1770 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 3. |
Forveri | William Pitt eldri |
Eftirmaður | North lávarður |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 28. september 1735 |
Látinn | 14. mars 1811 (75 ára) Euston Hall, Suffolk |
Stjórnmálaflokkur | Viggar |
Maki | Anne Liddell (g. 1756; skildu 1769), Elizabeth Wrottesley (g. 1769) |
Börn | 12 |
Undirskrift |
Loka
Grafton varð forsætisráðherra árið 1768 þegar hann var 33 ára. Hann fór fyrir stuðningsmönnum forvera síns, Williams Pitt eldri, og var yngsti forsætisráðherra Bretlands þar til William Pitt yngri tók við embættinu 15 árum síðar. Grafton var illa í stakk búinn til að vernda nýunna yfirburði breska heimsveldisins eftir sigur Breta í sjö ára stríðinu. Hann sætti harðri gagnrýni eftir að hann leyfði Frökkum að innlima Korsíku og sagði því af sér árið 1770.