Bólivaríska bandalagið fyrir Ameríkuþjóðir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bólivaríska bandalagið fyrir Ameríkuþjóðir[1] (spænska: Alianza Bolivariana para los Pueblos de Nuestra América; skammstafað ALBA) er alþjóðastofnun sem byggir á hugsjóninni um pólitískan og efnahagslegan samruna ríkja í Rómönsku Ameríku og á Karíbahafinu.
Bólivaríska bandalagið fyrir Ameríkuþjóðir Alianza Bolivariana para los Pueblos de Nuestra América (spænska) | |
---|---|
Aðildarríki stofnunarinnar sjást hér grænlituð. | |
Skammstöfun | ALBA |
Stofnun | 14. desember 2004; fyrir 19 árum (2004-12-14) |
Höfuðstöðvar | Karakas, Venesúela |
Staðsetning | Ameríka |
Meðlimir | 10 fullgild aðildarríki 1 ríki í aðildarviðræðum |
Opinber tungumál | Spænska, enska |
Aðalritari | Félix Plasencia |
Vefsíða | albatcp.org |
ALBA var upphaflega stofnað af Kúbu og Venesúela árið 2004 og samtökin eru vanalega tengd við sósíalískar og sósíaldemókratískar ríkisstjórnir sem vilja ná fram efnahagslegum samruna í þessum heimshluta með samfélagsvelferð, vöruskipti og gagnkvæma efnahagsaðstoð að leiðarljósi. Núverandi aðildarríki samtakanna eru Antígva og Barbúda, Bólivía, Kúba, Dóminíka, Grenada, Níkaragva, Sankti Kristófer og Nevis, Sankti Lúsía, Sankti Vinsent og Grenadínur og Venesúela.[2] Súrínam hlaut gestaaðild að ALBA á fundi samtakanna í febrúar 2012. Aðildarríki ALBA mega versla sín á milli með stafrænum gjaldmiðli sem heitir SUCRE. Venesúela og Ekvador gerðu fyrsta tvíhliða verslunarsamninginn með notkun Sucre í stað Bandaríkjadollara þann 6. júlí 2010.[3] Ekvador sagði upp aðild sinni að samtökunum í ágúst 2018.[4]