Beata Szydło
Forsætisráðherra Póllands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Beata Maria Szydło (f. Kusińska; 15 apríl 1963) er pólsk stjórnmálakona.[1] Hún var forsætisráðherra Póllands frá 16. nóvember 2015 til 11. desember 2017.[2] Szydło var forsætisráðherraefni íhaldsflokksins Laga og réttlætis í þingkosningum Póllands árið 2015 og leiddi flokkinn til stórsigurs. Hún varð þriðji kvenforsætisráðherra Póllands á eftir Hönnu Suchocka og Ewu Kopacz.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Póllands, Forseti ...
Beata Szydło | |
---|---|
Forsætisráðherra Póllands | |
Í embætti 16. nóvember 2015 – 11. desember 2017 | |
Forseti | Andrzej Duda |
Forveri | Ewa Kopacz |
Eftirmaður | Mateusz Morawiecki |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 15. apríl 1963 (1963-04-15) (61 árs) Oświęcim, Póllandi |
Þjóðerni | Pólsk |
Stjórnmálaflokkur | Lög og réttlæti |
Maki | Edward Szydło |
Börn | 2 |
Háskóli | Jagielloński-háskólinn |
Undirskrift |
Loka