Benjamín Netanjahú
Forsætisráðherra Ísraels / From Wikipedia, the free encyclopedia
Benjamín „Bibi“ Netanjahú (hebreska: בִּנְיָמִין נְתַנְיָהוּ; einnig ritað Benjamin Netanyahu eftir umritun á ensku) (f. 21. október 1949 í Tel Aviv) er níundi og núverandi forsætisráðherra Ísraels. Hann hefur gegnt embættinu frá 2022 en hafði áður þjónað því embætti frá 2009 til 2021 og frá 1996 til 1999. Hann situr á ísraelska þjóðþinginu Knesset (hebreska: הַכְּנֶסֶת) sem formaður Likud-flokksins og er fyrsti forsætisráðherra landins sem er fæddur eftir að ísraelska ríkið var stofnað. Netanjahú er jafnframt þaulsetnasti forsætisráðherra í sögu Ísraels.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Ísraels, Forseti ...
Benjamín Netanjahú בִּנְיָמִין נְתַנְיָהוּ | |
---|---|
Forsætisráðherra Ísraels | |
Núverandi | |
Tók við embætti 29. desember 2022 | |
Forseti | Isaac Herzog |
Forveri | Yair Lapid |
Í embætti 31. mars 2009 – 13. júní 2021 | |
Forseti | Shimon Peres Reuven Rivlin |
Forveri | Ehud Olmert |
Eftirmaður | Naftali Bennett |
Í embætti 18. júní 1996 – 6. júlí 1999 | |
Forseti | Ezer Weizman |
Forveri | Shimon Peres |
Eftirmaður | Ehud Barak |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. október 1949 (1949-10-21) (74 ára) Tel Avív, Ísrael |
Þjóðerni | Ísraelskur |
Stjórnmálaflokkur | Likud |
Maki | Miriam Weizmann (g. 1972; skilin 1978) Fleur Cates (g. 1981; skilin 1984) Sara Ben-Artzi (g. 1991) |
Trúarbrögð | Gyðingdómur |
Börn | 3 |
Háskóli | Tækniháskólinn í Massachusetts, Harvard-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður, erindreki, rithöfundur, fjármálaráðgjafi |
Undirskrift |
Loka