Dwight D. Eisenhower
34. forseti Bandaríkjanna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Dwight David „Ike“ Eisenhower (14. október 1890 – 28. mars 1969) var 34. forseti Bandaríkjanna frá 20. janúar 1953 til 20. janúar 1961 fyrir Repúblikana. Í síðari heimsstyrjöldinni var hann yfirmaður alls herafla bandamanna í Evrópu og stjórnaði meðal annars innrásum í Frakkland og Þýskaland 1944 til 1945. Árið 1949 varð hann fyrsti yfirmaður Evrópuherstjórnar NATO. Í forsetatíð hans lauk Kóreustríðinu 1953, auknu fé var veitt til þróunar kjarnavopna og kapphlaupið um geiminn hófst.
Staðreyndir strax Forseti Bandaríkjanna, Varaforseti ...
Dwight D. Eisenhower | |
---|---|
Forseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 20. janúar 1953 – 20. janúar 1961 | |
Varaforseti | Richard Nixon |
Forveri | Harry S. Truman |
Eftirmaður | John F. Kennedy |
Yfirmaður Evrópuherstjórnar Atlantshafsbandalagsins | |
Í embætti 2. apríl 1951 – 30. maí 1952 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Matthew Ridgway |
Yfirmaður herforingjaráðs bandaríska landhersins | |
Í embætti 19. nóvember 1945 – 6. febrúar 1948 | |
Forseti | Harry S. Truman |
Forveri | George C. Marshall |
Eftirmaður | Omar Bradley |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 14. október 1890 Denison, Texas, Bandaríkjunum |
Látinn | 28. mars 1969 (78 ára) Washington, D.C., Bandaríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Mamie Doud (g. 1916) |
Börn | Doud, John |
Háskóli | West Point |
Starf | Hermaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka