Edgars Rinkēvičs
Fyrrum embættis- og stjórnmálamaður, og nú forseti Lettlands (frá 2023) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Edgars Rinkēvičs (f. 21. september 1973) er lettneskur embættismaður og stjórnmálamaður sem er núverandi forseti Lettlands. Hann var utanríkisráðherra Lettlands frá 2011 til 2023. Áður en hann varð ráðherra hafði hann verið formaður yfirdómstóls forsetaembættis Lettlands, ríkisritari varnarmálaráðuneytisins og meðlimur á lettneska þinginu (Saeima). Þegar hann tók við forsetaembætti varð hann fyrsti samkynhneigði þjóðhöfðingi í Evrópusambandinu.[1]
Staðreyndir strax Forseti Lettlands, Forsætisráðherra ...
Edgars Rinkēvičs | |
---|---|
Forseti Lettlands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 8. júlí 2023 | |
Forsætisráðherra | Arturs Krišjānis Kariņš Evika Siliņa |
Forveri | Egils Levits |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 21. september 1973 (1973-09-21) (50 ára) Jūrmala, lettneska sovétlýðveldinu (nú Lettlandi) |
Stjórnmálaflokkur | Lettneska leiðin (1998–2004) Umbótaflokkurinn (2012–2014) Eining (2014–2023) |
Háskóli | Háskóli Lettlands |
Loka
Rinkēvičs hafði setið á þingi fyrir Lettnesku leiðina og Umbótaflokkinn en var meðlimur í stjórnmálaflokknum Einingu frá maí 2014. Hann sagði upp aðild sinni að flokknum eftir að hann var kjörinn forseti þar sem hefð er fyrir því að forsetar viðhaldi pólitísku hlutleysi.