Engisprettnaætt
From Wikipedia, the free encyclopedia
Engisprettnaætt (Acrididae) er hópur skordýra af ættbálki beinvængja og undirættbálki Caelifera og telur 10-11 þúsund tegundir. Stærð er á bilinu 9-80 mm og eru þær með stærri skordýrum. Búsvæði eru opin svæði og graslendi þar sem þær éta laufblöð og grös. Þær geta verið skaðvaldar fyrir uppskeru manna.
- Anacridium aegyptium
- Coryphistes ruricola
- Acrida sinerea
- Melanoplus femurrubrum