Evrópudómstóllinn
From Wikipedia, the free encyclopedia
Evrópudómstóllinn (ECJ) er dómstóll Evrópusambandsins, hann hefur aðsetur í Lúxemborg ólíkt flestum stofnunum ESB sem hafa aðsetur í Brussel. Evrópudómstóllinn dæmir í málum sem varða túlkun á Evrópurétti en hann hefur einkarétt á slíkri túlkun og dómstólar í aðildarríkjunum eru bundnir af túlkun hans. Fordæmi Evrópudómstólsins er því mjög mikilvæg réttarheimild í ESB-rétti.
- Athugið að ruglast ekki á þessum dómstól og Mannréttindadómstól Evrópu, hann er stofnun á vegum Evrópuráðsins.