Francisco Franco
Spænskur hershöfðingi og einræðisherra (1892-1975) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Francisco Paulino Hermenegildo Teódulo Franco y Bahamonde (4. desember 1892 – 20. nóvember 1975) betur þekktur sem Francisco Franco var einræðisherra á Spáni á árunum 1936/39 til 1975. Spænska borgarastyrjöldin hófst með uppreisn sem hann leiddi, og lauk árið 1939 með sigri Francos og manna hans, sem nefndir voru falangistar.
Staðreyndir strax Caudillo Spánar, Forsætisráðherra ...
Francisco Franco | |
---|---|
Caudillo Spánar | |
Í embætti 1. október 1936 – 20. nóvember 1975 | |
Forsætisráðherra | Hann sjálfur Luis Carrero Blanco Carlos Arias Navarro |
Forveri | Manuel Azaña (sem forseti) |
Eftirmaður | Jóhann Karl 1. (sem konungur) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 4. desember 1892 Ferrol, Galisíu, Spáni |
Látinn | 20. nóvember 1975 (82 ára) Madrid, Spáni |
Stjórnmálaflokkur | FET y de las JONS |
Maki | Carmen Polo |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Börn | Carmen Franco |
Háskóli | Fótgönguliðaháskóli Toledo |
Starf | Hermaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka
Franco var afar umdeildur bæði innan og utan Evrópu. Stuðningsmenn hans hrósa honum fyrir andstöðu hans gegn kommúnisma, efnahagsstefnu hans, stuðning við spænskar hefðir og spænska konungdæmið. Gagnrýnendur líta helst á hann sem harðsvíraðan einræðisherra sem beitti ofbeldi gegn andófsmönnum og öllu sem ekki þótti nógu spænskt, beitti útrýmingarbúðum og nauðungarvinnu og studdi við bakið á Öxulveldunum.