Fyrsta stríð Ísraels og Araba
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stríð Ísraels og Araba 1948, einnig kallað fyrsta stríð Ísraels og Araba eða ísraelska sjálfstæðisstríðið, var stríð sem hið nýstofnaða Ísraelsríki háði gegn arabískum nágrannaþjóðum sínum árið 1948. Palestínumenn tala um stríðið og eftirmála þess sem nakba, eða „áfallið mikla“, vegna mikils fjölda Palestínumanna sem létu lífið eða hröktust frá heimilum sínum í átökunum. Stríðinu lauk með vopnahléi og staðfestingu flestra stórveldanna á sjálfstæði Ísraelsríkis en Arabaþjóðirnar viðhéldu hins vegar yfirráðum á Gasaströndinni, Vesturbakkanum og Austur-Jerúsalem eftir stríðið.
Fyrsta stríð Ísraels og Araba | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hluti af deilum Araba og Ísraela | |||||||||
Avraham „Bren“ Adan höfuðsmaður markar endalok stríðsins með því að draga ísraelska fánann að húni við Umm Rashrash. | |||||||||
| |||||||||
Stríðsaðilar | |||||||||
Fyrir 26. maí 1948: Skæruliðasveitir: Eftir 26. maí 1948: Erlendir sjálfboðaliðar: Mahal |
Sérsveitir: Erlendir sjálfboðaliðar: Bræðralag múslima Pakistan Súdan[6] | ||||||||
Leiðtogar | |||||||||
David Ben-Gurion Yisrael Galili Yaakov Dori Yigael Yadin Mickey Marcus Yigal Allon Yitzhak Rabin David Shaltiel Moshe Dayan Shimon Avidan Moshe Carmel Yitzhak Sadeh |
Azzam Pasja Farúk 1. Ahmed Ali al-Mwawi Múhameð Naguib Abdúlla 1. John Bagot Glubb Habis Majali Muzahim al-Pachachi Husni al-Za'im Haj Amin al-Husseini Hasan Salama Fawzi al-Qawuqji | ||||||||
Fjöldi hermanna | |||||||||
Ísrael: 29.677 (í byrjun) 117.500 (að lokum)[7] |
Egyptaland: 10.000 í byrjun, síðar 20.000 Transjórdanía: 7.500–10.000[8][9] Írak: 2.000 í byrjun,[8] síðar 15.000–18.000 Sýrland: 2.500–5.000[8] Líbanon: 436[10] Sádi-Arabía: 800–1.200 (undir egypskri stjórn) Jemen: 300 Arabíski frelsunarherinn: 3.500–6.000. Alls: 13.000 (í byrjun) 51.100 (að minnsta kosti) 63.500 (í mesta lagi)[7] | ||||||||
Mannfall og tjón | |||||||||
6.373 drepnir (um 4.000 hermenn og 2.400 óbreyttir borgarar)[11] |
Herlið araba: 3.700–7.000 drepnir Palestínskir arabar: 3.000–13.000 drepnir (bæði hermenn og óbreyttir borgarar)[12][13] |