Hamborg
borg og eitt af 16 sambandslöndum Þýskalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hamborg (hágþýska: Hamburg, lágþýska: Hamborg) er borg og næstminnsta sambandslandið í Þýskalandi með 755 km². Aðeins Bremen er minna. Hún er hins vegar næststærsta borg Þýskalands með tæpa 1,90 milljón íbúa (2021) og jafnframt stærsta hafnarborg landsins. Hamborg var stofnborg og einn ötullasti meðlimur Hansasambandsins áður fyrr. Sérstakt við Hamborg eru hinar óteljandi brýr. Þær eru um 2500, fleiri en í nokkurri annarri borg í Evrópu og reyndar fleiri en í Feneyjum, Amsterdam og London samanlagt.
Staðreyndir strax Hamburg (þýska), Land ...
Hamborg
Hamburg (þýska) | |
---|---|
Borg og sambandsland | |
Hnit: 53°33′N 10°00′A | |
Land | Þýskaland |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Peter Tschentscher (SPD) |
Flatarmál | |
• Borg | 755,22 km2 |
Mannfjöldi (2022) | |
• Borg | 1.945.532 |
• Þéttleiki | 2.600/km2 |
Tímabelti | UTC+01:00 (CET) |
• Sumartími | UTC+02:00 (CEST) |
Póstnúmer | 20001–21149, 22001–22769 |
Vefsíða | hamburg |
Loka