Hebreska sjálfstjórnarfylkið
fylki í Asíuhluta Rússneska sambandsríkisins / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hebreska sjálfstjórnarfylkið (á rússnesku: Еврейская автономная область), er í Rússneska sambandsríkinu og ein 83 eininga þess. Það liggur að Khabarovskfylki og Amúrfylki í austurhluta sambandsríkisins og við landamæri Heilongjiang-héraðs í Kína. Fylkið er um 36.000 ferkílómetrar.
Árið 2010 voru íbúar um 176.558, af ýmsu þjóðerni, en langstærstur hluti þeirra Rússar eða 93%. Önnur þjóðarbrot eru: Úkraínumenn 3% og Gyðingar um 1%. Höfuðstaður fylkisins er Birobidzhan með um 75 þúsund íbúa.