Hinrik 6. Englandskonungur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hinrik 6. (6. desember 1421 – 21./22. maí 1471) var konungur Englands frá 1422 til 1461 og aftur frá 1470 til 1471 og taldi sig einnig konung Frakklands frá 1422 til 1453. Hann er sagður hafa verið friðsamur og trúrækinn en lítill skörungur. Landinu var stýrt af ríkisstjórum til 1437 og seinna tók Margrét drottning, kona Hinriks, við valdataumunum þegar henni þótti konungurinn of linur. Hann var síðasti konungurinn af Lancaster-ætt.
Staðreyndir strax
| ||||
Hinrik 6. | ||||
Ríkisár | 1. september 1422 – 4. mars 1461 3. október 1470 – 11. apríl 1471 | |||
Skírnarnafn | Henry Lancaster | |||
Fæddur | 6. desember 1421 | |||
Windsor-kastala, Berkshire, Englandi | ||||
Dáinn | 21. maí 1471 (49 ára) | |||
Lundúnaturni, London, Englandi | ||||
Gröf | Windsor-kastali | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Hinrik 5. | |||
Móðir | Katrín af Valois | |||
Drottning | Margrét af Anjou (g. 1445) | |||
Börn | Játvarður af Westminster |
Loka