Jóhann Hafstein
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jóhann Hafstein (19. september 1915 – 15. maí 1980) var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra Íslands.
Hann var fæddur á Akureyri, sonur Júlíusar Havsteens, síðar sýslumanns, og Þórunnar Jónsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1934 og lagaprófi frá Háskóla Íslands 1938, ásamt því að sinna starfi sem formaður Stúdentaráðs háskólans. Stundaði hann síðan framhaldsnám í þjóðarétti við Lundúnaháskóla og í Danmörku og Þýskalandi fram á haust 1939.
Jóhann kvæntist 1938 Ragnheiði Thors, dóttur Hauks Thors (bróður Ólafs Thors forsætisráðherra) og Soffíu Hafstein (dóttur Hannesar Hafstein ráðherra) og áttu þau þrjá syni, Hauk, Jóhann Júlíus og Pétur.