Jaðarþungarokk
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jaðarþungarokk (e. alternative metal) er tegund þungarokks og jaðarrokks sem var vinsæl á 10. áratugnum.[1][2]
Staðreyndir strax Uppruni, Hljóðfæri ...
Jaðarþungarokk | |
---|---|
Uppruni | Seinni hluti 9. áratugsins, bandaríkin |
Hljóðfæri | Söngur, gítar, bassi, trommur |
Vinsældir | Neðanjarðar í seinna hluta 9. áratugsins. Meginstraumsvinsældir á 10. áratugnum. Meðal-vinsælt í dag. |
Tengdar stefnur | |
Nýmetall, Fönk-þungarokk, Rapp-þungarokk, Jaðarrokk, Rokk, Þungarokk, Fönk, Iðnaðarrokk |
Loka
Tónlistarstefnan heldur í grunneinkenni þungarokks en tekur einnig einkenni annarra stefna. Hljómsveitir sem kenndar hafa verið við jaðarþungarokk blönduðu þungarokki við til dæmis framsækið rokk, bílskúrspönk, fönk, rapp, iðnaðarrokk og ofskynjunarrokk. Margar af helstu sveitum jaðarþungarokksins þykja einkennast af tilraunakenndri tónlist sem notast við hljóð sem áður var að mestu óþekkt innan þungarokksins.[3]