Jacob Brønnum Scavenius Estrup
Forsætisráðherra Danmerkur (1825-1913) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jacob Brønnum Scavenius Estrup (16. apríl 1825 – 24. desember 1913) var danskur landeigandi og stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Danmerkur frá 1875 til 1894. Á nítján ára stjórnartíð sinni stjórnaði Estrup í óþökk danska þjóðþingsins með því að leysa það ítrekað upp og beita konunglegum stjórnartilskipunum til að fá vilja sínum framgengt. Estrup var einn voldugasti stjórnmálamaður Danmerkur á 19. öld og um leið einn sá umdeildasti og hataðasti. Estrup er jafnframt sá forsætisráðherra Danmerkur sem lengst hefur setið í embætti.[1]
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Danmerkur, Þjóðhöfðingi ...
Jacob Brønnum Scavenius Estrup | |
---|---|
Forsætisráðherra Danmerkur | |
Í embætti 11. júní 1875 – 7. ágúst 1894 | |
Þjóðhöfðingi | Kristján 9. |
Forveri | C. A. Fonnesbech |
Eftirmaður | Tage Reedtz-Thott |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 16. apríl 1825 Sórey, Danmörku |
Látinn | 24. desember 1913 (88 ára) Kongsdal, Danmörku |
Stjórnmálaflokkur | Hægriflokkurinn |
Maki | Regitze Holsten (g. 1857) |
Loka