Krasnodarfylki
From Wikipedia, the free encyclopedia
Krasnodarfylki (rússnesku: Краснодарский край, Krasnodarskíj kraj) er landshluti (край) innan Rússneska sambandsríkisins og ein 83 eininga þess. Fylkið nær yfir vesturhluta Norður-Kákasus, á Kúban-Azov sléttunni sem liggur að Svartahafi. Fylkið er rúmir 75.000 ferkílómetrar. Íbúar eru 5,2 milljónir (2010) af ýmsu þjóðerni en langstærstur hluti þeirra er Rússar eða 86,6%. Önnur þjóðarbrot eru: Armenar 5,4% og Úkraínumenn 2,6%. Grikkir, Hvít-Rússar og Tatarar eru um 0,5%. Höfuðborg fylkisins er Krasnodar með um 700 þúsund íbúa.