Leoníd Kravtsjúk
1. forseti Úkraínu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Leoníd Makarovytsj Kravtsjúk (f. 10. janúar 1934; d. 10. maí 2022) var úkraínskur stjórnmálamaður sem var fyrsti forseti Úkraínu. Kravtsjúk gegndi forsetaembættinu frá sjálfstæði Úkraínu undan Sovétríkjunum árið 1991 til ársins 1994, en þá tapaði hann endurkjöri gegn fyrrum forsætisráðherranum Leoníd Kútsjma. Kravtsjúk hafði áður verið stjórnmálamaður í sovéska kommúnistaflokknum og hafði verið meðal hvatamanna að því að Úkraína lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum. Á stjórnartíð Kravtsjúks létu Úkraínumenn af hendi öll kjarnorkuvopn sem höfðu verið skilin eftir í landinu við fall Sovétríkjanna.
Staðreyndir strax Forseti Úkraínu, Forsætisráðherra ...
Leoníd Kravtsjúk Леонід Кравчук | |
---|---|
Forseti Úkraínu | |
Í embætti 24. ágúst 1991 – 19. júlí 1994 | |
Forsætisráðherra | Vítold Fokín Valentyn Symonenko (starfandi) Leoníd Kútsjma Júkhym Zvjahílskyj (starfandi) Vítalíj Masol |
Forveri | Fyrstur í embætti |
Eftirmaður | Leoníd Kútsjma |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 10. janúar 1934 Żytyń, Póllandi (nú Velykyj Zjytyn, Rívnefylki, Úkraínu) |
Látinn | 10. maí 2022 (88 ára) München, Þýskalandi |
Þjóðerni | Úkraínskur |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn (1991–1994) Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna 1958–1991 Jafnaðarmannaflokkur Úkraínu 1994–2009 |
Maki | Antonína Mykhajlívna Mísjúra |
Börn | 1 |
Háskóli | Háskólinn í Kænugarði |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka