Listi yfir hástafahandrit Nýja testamentisins
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hástafahandrit Nýja testamentisins urðu flest til á tímabilinu frá 3. öld fram á 10. öld eftir Krist. Einkennandi fyrir þessi handrit er efnið, þ.e. bókfell eða skinn (pergament) sem kom í staðinn fyrir papýrus, bókarformið sem kom í stað rúllu (bókrollu), og stafagerðin, gríska hástafaletrið. Á 9. öld fóru menn að nota lágstafaletur, og leysti það brátt hástafaletrið af hólmi.
Nú eru kunn 322 hástafahandrit með textum úr Nýja testamentinu, en flest þeirra eru aðeins lítil brot.[1] Rannsóknir á hástafahandritunum á 19. og 20. öld höfðu mikla þýðingu fyrir textafræði Nýja testamentisins.