Múhameð Ómar
Stofnandi og fyrsti leiðtogi Talíbana (1960-2013) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Múhameð Ómar (pastú: محمد عمر, Muḥammad 'Umar; 1960 – 23. apríl 2013), gjarnan kallaður Múlla Ómar, var afganskur múlla (múslimaklerkur) sem stofnaði og leiddi Talíbana, vopnaða hreyfingu íhaldssamra súnní-íslamskra bókstafstrúarmanna. Undir stjórn Múlla Ómars náðu Talíbanar stjórn á Afganistan árið 1996 og réðu yfir mestöllu landinu sem íslömsku emírsdæmi næstu fimm árin. Múlla Ómar tók sér titilinn Amir-ul-Momineen en stjórn hans var ekki viðurkennd af þorra alþjóðasamfélagsins.
Múhameð Ómar محمد عمر | |
---|---|
Æðsti leiðtogi Afganistans (umdeilt) | |
Í embætti 27. september 1996 – 13. nóvember 2001 | |
Forsætisráðherra | Mohammad Rabbani |
Forveri | Burhanuddin Rabbani (sem forseti) |
Eftirmaður | Burhanuddin Rabbani (sem forseti) |
Leiðtogi Talíbana | |
Í embætti September 1994 – 23. apríl 2013 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Akhtar Mansúr |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 1960 Khakrez, Kandahar, Afganistan |
Látinn | 23. apríl 2013 Zabul, Afganistan |
Dánarorsök | Berklar |
Þjóðerni | Afganskur |
Stjórnmálaflokkur | Talíbanar |
Maki | 3 eiginkonur |
Trúarbrögð | Súnní |
Börn | 5 eða 6 |
Háskóli | Darul Uloom Haqqania |
Á stjórnartíð Ómars réðu Talíbanar Afganistan harðri hendi með ofstækisfullri túlkun á sjaríalögum. Stjórn hans skaut hlífiskildi yfir íslamska hryðjuverkahópa á borð við Al-Kaída og leiðtoga þeirra, Osama bin Laden. Eftir að Al-Kaída stóð fyrir hryðjuverkaárásunum í New York 11. september 2001 gerðu Bandaríkjamenn innrás í Afganistan og komu Talíbönum frá völdum. Múlla Ómar fór í felur en stýrði skæruhernaði gegn Bandaríkjamönnum og nýrri stjórn Afganistans næstu tólf árin.
Múlla Ómar lést úr berklum árið 2013. Talíbanar héldu dauða hans leyndum í tvö ár.