Múhameð Resa Pahlavi
Keisari Írans frá 1941 til 1979 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Múhameð Resa Sja (persneska: محمد رضا شاه پهلوی Mohammad Rezâ Šâhe Pahlavi; 26. október 1919 – 27. júlí 1980) var Íranskeisari frá 16. september 1941 þar til honum var steypt af stóli í írönsku byltingunni 11. febrúar 1979. Hann tók sér titilinn Shāhanshāh („konungur konunganna“ eða keisari) 26. október 1967. Hann var annar og síðasti keisarinn af Pahlavi-ætt á eftir föður sínum, Resa Sja.
| ||||
Múhameð Resa Pahlavi محمدرضا پهلوی | ||||
Ríkisár | 16. september 1941 – 11. febrúar 1979 | |||
Skírnarnafn | Mohammad Rezâ Šâhe Pahlavi | |||
Fæddur | 26. október 1919 | |||
Teheran, Persíu | ||||
Dáinn | 27. júlí 1980 (60 ára) | |||
Kaíró, Egyptalandi | ||||
Gröf | Al-Rifa'i-moska, Kaíró | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Resa Sja | |||
Móðir | Tadj ol-Molouk | |||
Eiginkonur | Fosía af Egyptalandi (g. 1939; skilin 1948) Soraja Esfandiary-Bakhtiari (g. 1951; skilin 1958) Farah Diba (g. 1959) | |||
Börn | 5 |
Þegar Múhameð Mossadek sem var forsætisráðherra frá 1951 hugðist þjóðnýta olíuframleiðslu landsins framdi Pahlavi valdarán eftir þrýsting frá Bandaríkjunum og Bretlandi. Við það fékk hann meiri bein völd og erlend olíufyrirtæki tóku aftur yfir olíuiðnaðinn í Íran. Árið 1963 hleypti hann Hvítu byltingunni af stokkunum sem var ætlað að færa landið nær nútímanum og gera það veraldlegra. Við þetta missti hann stuðning sjíaklerka og lágstéttanna. Þetta leiddi til írönsku byltingarinnar 1979. Resa Pahlavi flúði frá Íran ásamt eiginkonu sinni Farah Diba 17. janúar. Fljótlega eftir það var einveldi afnumið og Íran gert að íslömsku lýðveldi með klerkastjórn.
Í útlegðinni bjó Múhameð Resa á ýmsum stöðum, meðal annars í Egyptalandi, Marokkó, Bahamaeyjum, Mexíkó og Panama. Hann lést í Egyptalandi.