Maís
From Wikipedia, the free encyclopedia
Maís (fræðiheiti: Zea mays) er korntegund sem fyrst var ræktuð í Mið-Ameríku en breiddist út vítt um heim eftir að Evrópubúar komu þangað á 15. öld.
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Tvínefni ...
Maís | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Maísafbrigði | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Zea mays L. | ||||||||||||||
Loka
Maís er sú korntegund þar sem erfðabreytt afbrigði eru orðin stærstur hluti af heildaruppskerunni; árið 2009 voru 85% af öllum maís sem ræktaður er í Bandaríkjunum erfðabreytt afbrigði en maís er algengasta korntegundin þar og ræktaður á 37% kornakra landsins. Um 40% af heimsuppskerunni koma frá Bandaríkjunum en önnur helstu maísræktarlönd eru Kína, Brasilía, Mexíkó, Indónesía, Indland og Frakkland.