Malaví
Land í Suðaustur-Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Malaví er landlukt land í Suðaustur-Afríku sem liggur á milli Mósambík, Sambíu og Tansaníu. Helsta einkenni Malaví er Malaví-vatn sem nær yfir tæplega fimmtung landsins, en samtals er flatarmál Malaví 120 þús. ferkílómetrar.
Staðreyndir strax
Republic of Malawi Dziko la Malaŵi | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Unity and freedom (enska) Samheldni og frelsi | |
Þjóðsöngur: Mlungu dalitsani Malaŵi | |
Höfuðborg | Lílongve |
Opinbert tungumál | Enska,chichewa |
Stjórnarfar | Forsetaræði |
Forseti | Lazarus Chakwera |
Sjálfstæði | frá Bretlandi |
• Yfirlýst | 6. júlí 1964 |
• Lýðveldi | 6. júlí 1966 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
98. sæti 118.484 km² 20,6 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
62. sæti 19.129.952 153,1/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 25,037 millj. dala (148. sæti) |
• Á mann | 1.234 dalir (185. sæti) |
VÞL (2019) | 0.483 (174. sæti) |
Gjaldmiðill | kvatsja (MWK) |
Tímabelti | UTC+2 |
Þjóðarlén | .mw |
Landsnúmer | +265 |
Loka
Malaví er eitt af þéttbýlustu löndum í Afríku og búa þar alls 11 milljónir manna. Fólkið lifir helst á landbúnaði og fiskveiðum í Malaví-vatni. Mikil fátækt ríkir í landinu en ríkari lönd keppast við að hjálpa Malavíbúum með því að kenna þeim arðbærari vinnubrögð í landbúnaði og fiskveiðum, ásamt fullorðinsfræðslu.