Oda Nobunaga
From Wikipedia, the free encyclopedia
Oda Nobunaga (japanska: 織田 信長; 23. júní 1534 – 21. júní 1582) var einn af valdamestu lénsherrum (daimyo) í Japan á sextándu öld. Það tímabil hefur verið nefnt sengoku-öldin (japanska: 戦国時代) eða þriggja ríkja öldin, í sögu Japans. Hugtakið daimyo hefur gjarnan verið þýtt sem barón á íslensku en hér verður notast við orðið lénsherra sem er meira lýsandi.
Oda Nobunaga 織田 信長 | |
---|---|
Udaijin | |
Í embætti 1577 – 1578 | |
Þjóðhöfðingi | Ōgimachi keisari |
Höfuð Oda-ættarinnar | |
Í embætti 1551 – 1582 | |
Forveri | Oda Nobuhide |
Eftirmaður | Oda Hidenobu |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 23. júní 1534 Nagoya-kastala, Owari, Japan |
Látinn | 21. júní 1582 (47 ára) Honnō-ji, Kýótó, Japan |
Þjóðerni | Japanskur |
Maki | Nōhime |
Foreldrar | Oda Nobuhide og Tsuchida Gozen |
Undirskrift |
Sengoku-öldin einkenndist af blóðugum átökum borgarastyrjaldar. Nobunaga bar aðeins titilinn lénsherra en var þó valdameiri en bæði keisarinn og sjóguninn, sem var yfirmaður hersins. Ævi hans var undirlögð af bardögum og átökum við aðra valdamenn ríkisins. Flest öllum átökunum lauk með sigri Nobunaga en farsæld hans á bardagavellinum hjálpaði honum að leggja grunninn að sameiningu Japans undir eina stjórn. Sérviska hans og ráðsnilld hefur gert Nobunaga að einni þekktustu persónu japanskrar sögu.