Pedro Sánchez
Forsætisráðherra Spánar / From Wikipedia, the free encyclopedia
Pedro Sánchez Pérez-Castejón er spænskur hagfræðingur og stjórnmálamaður sem er núverandi forsætisráðherra Spánar. Sánchez tók embætti 2. júní, 2018 þegar vantrausti var lýst á Mariano Rajoy þáverandi forsætisráðherra.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Spánar, Þjóðhöfðingi ...
Pedro Sánchez | |
---|---|
Forsætisráðherra Spánar | |
Núverandi | |
Tók við embætti 2. júní 2018 | |
Þjóðhöfðingi | Filippus 6. |
Forveri | Mariano Rajoy |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. febrúar 1972 (1972-02-29) (52 ára) Madríd, Spáni |
Stjórnmálaflokkur | Spænski sósíalíski verkamannaflokkurinn |
Maki | María Begoña Gómez Fernández (g. 2006) |
Börn | 2 |
Háskóli | Háskólinn í Complutense í Madríd Háskólinn í Brussel Háskólinn í Navarra Háskóli Camilo José Cela |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka
Hann hefur unnið sem aðstoðarmaður þingmanna á Evrópuþinginu, borgarfulltrúi í Madríd og aðalritari Spænska sósíalistaflokksins. Hann hefur jafnframt verið forseti Alþjóðasambands jafnaðarmanna frá árinu 2022. Sánchez er með doktorsgráðu í hagfræði og hefur kennt sem háskólaprófessor.
Sanchez talar frönsku og ensku reiprennandi. Hann er trúleysingi og ákvað að sverja ekki við biblíuna við embættistöku sína heldur við spænsku stjórnarskrána.