Ramzan Kadyrov
Einræðisherra í Téténíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ramzan Akhmadovítsj Kadyrov (rússneska: Рамзан Ахматович Кадыров; téténska: Къадар Ахьмат-кӏант Рамзан; f. 5. október 1976) er rússneskur og téténskur stjórnmálamaður sem hefur verið leiðtogi sjálfstjórnarlýðveldisins Téténíu innan Rússlands frá árinu 2005. Kadyrov var áður meðlimur í vopnaðri sjálfstæðishreyfingu Téténa. Faðir hans, Akhmad Kadyrov, gekk í lið með Rússum í seinna Téténíustríðinu og var útnefndur forseti téténska sjálfstjórnarlýðveldisins eftir sigur Rússa í stríðinu. Ramzan komst til valda eftir að faðir hans var myrtur árið 2004.
Ramzan Kadyrov Рамзан Кадыров Къадар Рамзан | |
---|---|
Forseti sjálfstjórnarlýðveldisins Téténíu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 5. apríl 2007 | |
Forveri | Alú Alkhanov |
Forsætisráðherra sjálfstjórnarlýðveldisins Téténíu | |
Í embætti 18. nóvember 2005 – 10. apríl 2007 | |
Forveri | Sergej Abramov |
Eftirmaður | Odes Bajsúltanov |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 5. október 1976 (1976-10-05) (47 ára) Tsentaroj, Téténíu-Ingúsetíu, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum (nú Akhmat-Júrt, Téténíu, Rússlandi) |
Þjóðerni | Téténskur |
Stjórnmálaflokkur | Sameinað Rússland |
Maki | Medni Musaevna Kadyrova (g. 1996) Fatima Khazujeva Aminat Akhmadova |
Trúarbrögð | Súnní-íslam |
Börn | 12 |
Háskóli | Viðskipta- og lagaskólinn í Makhatsjkala Ríkistækniháskólinn í Dagestan Ríkisháskólinn í Dagestan |
Undirskrift |
Kadyrov fer með einræðisvald innan Téténíu og stýrir sjálfstjórnarlýðveldinu með íhaldssamri túlkun á sjaríalögum. Stjórn hans hefur verið sökuð um fjölda mannréttindabrota, pólitískra morða og mannrána á andstæðingum sínum.