Sporbaugur
plankúrfa: keiluskurður er aflangur lokaður ferill sem er einn af keilusniðunum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sporbaugur eða sporaskja er heiti aflangs, lokaðs ferils sem er einn af keilusniðunum. Summa fjarlægða frá brennipunktunum, sem eru tveir, að sérhverjum punkti á ferlinum er ávallt fasti, en líta má á hring sem sértilvik sporbaugs þar sem brennipunktarnir eru einn og sami punkturinn. Brautir reikistjarna og halastjarna eru sporbaugar.