Theodor Heuss
Forseti Vestur-Þýskalands (1884-1963) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Theodor Heuss (31. janúar 1884 – 12. desember 1963) var þýskur blaðamaður og stjórnmálamaður sem var fyrsti forseti þýska sambandslýðveldisins (öðru nafni Vestur-Þýskalands) eftir seinni heimsstyrjöldina. Heuss var stofnandi og fyrsti leiðtogi Frjálsa demókrataflokksins, sem er frjálslyndur mið-hægriflokkur. Hann var jafnframt einn af aðalhöfundum stjórnarskrár Vestur-Þýskalands.
Staðreyndir strax Forseti Vestur-Þýskalands, Kanslari ...
Theodor Heuss | |
---|---|
Forseti Vestur-Þýskalands | |
Í embætti 12. september 1949 – 12. september 1959 | |
Kanslari | Konrad Adenauer |
Forveri | Fyrstur í embætti |
Eftirmaður | Heinrich Lübke |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 31. janúar 1884 Brackenheim, Konungsríkinu Württemberg, þýska keisaraveldinu |
Látinn | 12. desember 1963 (79 ára) Stuttgart, Baden-Württemberg, Vestur-Þýskalandi |
Þjóðerni | Þýskur |
Stjórnmálaflokkur | Frjálsi demókrataflokkurinn |
Maki | Elly Knapp (g. 1908; d. 1952) |
Háskóli | Ludwig-Maximilian-háskóli |
Undirskrift |
Loka