Áveita
Aðferð í landbúnaði að veita vatni á ræktunarland / From Wikipedia, the free encyclopedia
Áveita kallast sú aðferð í landbúnaði að veita vatni, úr úrkomu, ám eða stöðuvötnum á þurrt ræktunarland. Áveitur hafa skipt miklu máli í landbúnaði í yfir 5000 ár og haft áhrif á ýmis konar menningu. Aðferðin var fyrst notuð í Mesópótamíu 600 árum fyrir Krist. Áveitur geta haft ólík form eins og:
- Pallarækt þar sem vatni er hleypt niður fjallshlíðar og margnýtt
- Áveitur sem byggjast á tjörnum og vötnum. Grafnir eru skurðir milli og vatni hleypt á þá
- Vatnsleiðslur eru lagðar um þurrsvæði og látið dropa úr götum á þeim
- Þar sem neðanjarðarhellar flytja vatn milli svæða eru dýr nýtt til að dæla upp grunnvatni til jarðræktar