Georgía
Land í Kákasusfjöllum; Austur-Evrópu og Vestur-Asíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Georgía (georgíska საქართველო; Sakartvelo) er land í Kákasusfjöllum, við austurströnd Svartahafs. Georgía á landamæri að Rússlandi í norðri, Tyrklandi og Armeníu í suðri og Aserbaísjan í austri. Georgía liggur í Austur-Evrópu og Vestur-Asíu en hefur flestöll stjórnmálaleg og menningarleg tengsl sín við Evrópu.
Georgía | |
საქართველო (Sakartvelo) | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: ძალა ერთობაშია (georgíska) Aflið er í samstöðu | |
Þjóðsöngur: Tavisupleba | |
Höfuðborg | Tíblisi |
Opinbert tungumál | Georgíska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Salomé Zourabichvili (სალომე ზურაბიშვილი) |
Forsætisráðherra | Irakli Kobachidze (ირაკლი კობახიძე) |
Sjálfstæði | |
• frá Sovétríkjunum | 9. apríl 1991 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
119. sæti 69.700 km² - |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
131. sæti 3.716.858 57,6/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 46,05 millj. dala (112. sæti) |
• Á mann | 12.409 dalir (101. sæti) |
VÞL (2019) | 0.812 (61. sæti) |
Gjaldmiðill | Georgískur lari |
Tímabelti | UTC+4 |
Þjóðarlén | .ge |
Landsnúmer | +995 |
Á því svæði sem nú til dags þekkist sem Georgía hefur einatt verið búið síðan snemma á steinöld. Í fornöld voru þar konungsríkin Kolkis og Íbería, sem lögðu drög að menningu Georgíu. Löndin tóku upp kristna trú snemma á 3. öld og sameinuðust í eitt ríki árið 1008. Georgía gekk í gegnum tíma þar sem skiptust á upplausn og uppbygging þar til að ríkið brotnaði niður í nokkrar minni einingar á 16. öld. Rússaveldi tók smám saman yfir land Georgíu á árunum 1801-1866. Lýðveldið Georgía var skammlíft lýðræðisríki á árunum 1918-1921, á árunum eftir rússnesku byltinguna. Það féll í hendur Sovétríkjanna árið 1922. Georgía hlaut svo sjálfstæði á ný árið 1991 og eftir borgarastyrjöld og efnahagskreppur náðist ákveðið jafnvægi á síðari hluta 10. áratugsins. Árið 2003 fór fram bylting sem nefndist Rósabyltingin og fór alfarið fram án blóðsúthellinga. Komst þá að til valda ný ríkisstjórn sem stefndi að því að ganga í Atlantshafsbandalagið. Tilraunir nýju ríkisstjórnarinnar til að koma aðskildu svæðunum aftur undir stjórn Georgíu hafa orðið til þess að valda erjum milli Rússlands og Georgíu.
Landslag Georgíu er fjölbreytt allt frá hálendinu í Kákasusfjöllum til strandlengjunnar við Svartahaf, þar sem loftslag er heittemprað og dregur að ferðamenn. Saga landbúnaðar nær aftur til fornaldar og er sú atvinnugrein ennþá mikilvægur þáttur í efnahag landsins.
Í Georgíu er fulltrúalýðræði, nokkurs konar forsetalýðveldi. Georgía er meðlimur Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðs, Samveldis sjálfstæðra ríkja, Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og Svartahafsefnahagssamvinnusamtakanna, og hefur áhuga á að ganga í Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið.