Íslensk króna
From Wikipedia, the free encyclopedia
Íslensk króna (ISO 4217 kóði: ISK, oft skammstöfuð kr.) er samkvæmt lögum nr. 22/1968[1] opinber gjaldmiðill á Íslandi. Íslensk króna var fyrst gefin út af Landsbankanum árið 1876 á föstu gengi gagnvart dönsku krónunni og var hún þannig tengd verði á gulli með aðild að norræna myntbandalaginu.[2] Seðlabanki Íslands var stofnaður árið 1961 og frá árinu 1966 hefur hann haft einkarétt til útgáfu lögeyris á Íslandi. Árið 1981 var gerð myntbreyting þar sem felld voru brott tvö núll af verðgildi krónunnar, þannig að 100 gamlar krónur urðu að 1 nýrri krónu. Ein króna jafngilti upprunalega 100 aurum, en síðan 1. október 2003 hefur minnsta einingin verið 1 króna[3], og er auramynt nú verðlaus auk þess sem 100, 50 og 10 krónu seðlar hafa verið innkallaðir[4]. Árið 2014 voru eftirtaldar einingar gildur lögeyrir á Íslandi:
- Seðlar: 10.000, 5000, 2000, 1000, 500, (100, 50, 10) krónur
- Mynt: 100, 50, 10, 5, 1 krónur
Íslensk króna | |
---|---|
Land | Ísland |
ISO 4217-kóði | ISK |
Skammstöfun | kr. |
Mynt | 100, 50, 10, 5, 1 krónur |
Seðlar | 10000, 5000, 2000, 1000, 500 krónur |
Frá því að norræna myntbandalagið leið undir lok vegna fyrri heimsstyrjaldarinnar og tengingin við gullverð féll þar með niður, hefur verðmæti íslensku krónunnar til lengri tíma litið, jafnan farið lækkandi líkt og flestra gjaldmiðla annarra þjóðríkja á sama tímabili. Í mars 2001 var tekin upp flotgengisstefna þar sem verðlagning krónunnar var gefin frjáls í gjaldeyrisviðskiptum, og hækkaði gengi hennar talsvert í kjölfarið eða allt þar til í árslok 2005 þegar það hafði náð nánast sama gildi og í árslok 1991. Árið 2006 hóf gengið svo aftur að lækka allt fram að bankahruninu 2008 þegar það féll um næstum helming á síðasta fjórðungi ársins og voru þá sett höft á fjármagnsflutninga en með þeim hefur lækkunin gengið að nokkru leyti til baka og gengið haldist tiltölulega stöðugt. Á Íslandi fór magn seðla og myntar í umferð sem hlutfall af landsframleiðslu, lækkandi fram til ársins 2008, en hefur aukist nokkuð aftur síðan þá, ekki síst með útgáfu nýrra 10.000 króna seðla sem hófst í október 2013. Í stað seðla og mynta nota Íslendingar í sífellt ríkari mæli rafræna greiðslumiðla á borð við debetkort, kreditkort og netbanka.