Benjamin Ingrosso
From Wikipedia, the free encyclopedia
Benjamin Daniele Wahlgren Ingrosso (f. 14. september 1997) er sænskur söngvari og lagahöfundur. Sem barn kom hann fram í aðalhlutverki í ýmsum söngleikjum og árið 2006 vann hann Lilla Melodifestivalen með laginu „Hej Sofia“.[1][2] Hann sigraði í sjónvarpsþættinum Let's Dance 2014 og keppti í Melodifestivalen árið 2017 með laginu „Good Lovin'“ þar sem hann endaði í fimmta sæti.[3][4] Árið eftir tók hann aftur þátt í keppninni með laginu „Dance You Off“ og var valinn sem framlag Svíþjóðar í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2018 sem fór fram í Lissabon, Portúgal. Þar endaði hann í sjöunda sæti með 274 stig.[5]
Staðreyndir strax Fæddur, Störf ...
Benjamin Ingrosso | |
---|---|
Fæddur | Benjamin Daniele Wahlgren Ingrosso 14. september 1997 (1997-09-14) (26 ára) Danderyd, Stokkhólmssýslu, Svíþjóð |
Störf |
|
Ættingjar | Sebastian Ingrosso (frændi) |
Tónlistarferill | |
Ár virkur | 2005–í dag |
Stefnur | Popp |
Hljóðfæri | Rödd |
Útgefandi |
|
Vefsíða | benjaminingrossoofficial |
Loka