Bjarni Benediktsson (f. 1908)
Íslenskur stjórnmálamaður, fæddur 1908 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Bjarni Benediktsson (30. apríl 1908 – 10. júlí 1970) var borgarstjóri Reykjavíkur, alþingismaður, ráðherra og forsætisráðherra Íslands. Hann fæddist í Reykjavík, sonur Benedikts Sveinssonar, alþingismanns og bókavarðar, og Guðrúnar Pétursdóttur frá Engey, landsfrægs skörungs.
Bjarni Benediktsson | |
---|---|
Forsætisráðherra Íslands | |
Í embætti 14. nóvember 1963 – 10. júlí 1970 | |
Forseti | Ásgeir Ásgeirsson Kristján Eldjárn |
Forveri | Ólafur Thors |
Eftirmaður | Jóhann Hafstein |
Borgarstjóri Reykjavíkur | |
Í embætti 8. október 1940 – 4. febrúar 1947 | |
Forveri | Pétur Halldórsson |
Eftirmaður | Gunnar Thoroddsen |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 30. apríl 1908 Reykjavík, Íslandi |
Látinn | 10. júlí 1970 (62 ára) Þingvöllum, Íslandi |
Dánarorsök | Eldsvoði |
Stjórnmálaflokkur | Sjálfstæðisflokkurinn |
Maki | Valgerður Tómasdóttir (g. 1935; d. 1935) Sigríður Björnsdóttir (g. 1943) |
Börn | Björn, Guðrún, Valgerður og Anna |
Foreldrar | Benedikt Sveinsson og Guðrún Pétursdóttir |
Háskóli | Háskóli Íslands |
Starf | Stjórnmálamaður |
Bjarni lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík átján ára að aldri og gegndi hann embætti forseta Framtíðarinnar árið 1925[1]. Hann lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands 1930 með hæstu einkunn sem þá hafði verið gefin. Hann stundaði framhaldsnám í stjórnlagafræði í Berlín 1930-1932, var skipaður prófessor í lögum í Háskóla Íslands 1932 og gegndi því starfi til 1940. Hann varð heiðursdoktor í lögfræði frá Háskóla Íslands 1961.
Bjarni kvæntist Valgerði Tómasdóttur 1935 en missti hana eftir nokkurra mánaða sambúð. Hann kvæntist aftur 1943, Sigríði Björnsdóttur (1. nóvember 1919 – 10. júlí 1970) , og eignuðust þau fjögur börn, Björn, Guðrúnu, Valgerði og Önnu.