Grímur Kristgeirsson
From Wikipedia, the free encyclopedia
Grímur Kristgeirsson (f. 29. september 1897 – d. 19. apríl 1971) var íslenskur rakari og stjórnmálamaður. Hann var faðir Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands.[1]
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Grímur Kristgeirsson | |
---|---|
Fæddur | 29. september 1897(1897-09-29) Bakkakot í Skorradal, Ísland |
Dáinn | 19. apríl 1971 (73 ára) Reykjavík, Ísland |
Störf | Rakari og stjórnmálamaður |
Titill | Bæjarfulltrúi á Ísafirði |
Kjörtímabil | 1934–1953 |
Flokkur | Alþýðuflokkurinn |
Maki | Svanhildur Ólafsdóttir Hjartar |
Börn | 1 |
Loka
Grímur fæddist í Bakkakoti í Skorradal. Foreldrar hans voru Kristgeir Jónsson, bóndi, og Guðný Ólafsdóttir. Árið 1920, fluttist Grímur til Ísafjarðar þar sem hann starfaði fyrst sem lögregluþjónn í fjögur ár áður en hann opnaði rakarastofu. Árið 1939 kvæntist hann Svanhildi Ólafsdóttur frá Þingeyri. Hann var bæjarfulltrúi Alþýðuflokkins á Ísafirði frá 1934 til 1953 er fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur. Seinna starfrækti hann rakarastofu á Keflavíkurflugvelli sem hann rak til dauðadags.[1][2]