Hassan Rouhani
7. forseti Írans / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hassan Rouhani (persneska: حسن روحانی; fæddur Hassan Fereydoun þann 12. nóvember 1948) er fyrrverandi forseti Írans og sjöundi maðurinn sem hefur verið í því embætti. Áður var hann löggjafi, fræðimaður og diplómat. Hann var kosinn í forsetaembætti 3. ágúst 2013 og endurkjörinn árið 2017.[1] Hann er lögfræðingur og fyrrum ríkiserindreki. Hann hefur átt sæti í sérfræðingaráði Írans frá 1999 og í ráðgjafaráði æðsta leiðtogans frá 1991. Hann var ritari þjóðaröryggisráðsins frá 1989 til 2005 og lykilmaður í því að semja um kjarnorkuáætlun Írans við Bretland, Frakkland og Þýskaland.
Staðreyndir strax Forseti Írans, Þjóðhöfðingi ...
Hassan Rouhani حسن روحانی | |
---|---|
Forseti Írans | |
Í embætti 3. ágúst 2013 – 3. ágúst 2021 | |
Þjóðhöfðingi | Ali Khamenei |
Forveri | Mahmoud Ahmadinejad |
Eftirmaður | Ebrahim Raisi |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 12. nóvember 1948 (1948-11-12) (75 ára) Sorkheh, Semnan-héraði, Íran |
Þjóðerni | Íranskur |
Stjórnmálaflokkur | Hófsemis- og þróunarflokkurinn |
Maki | Sahebeh Arabi (1968–) |
Börn | 5 |
Háskóli | Qom-klerkaskólinn Háskólinn í Teheran Kaledóníuháskóli í Glasgow |
Undirskrift |
Loka
Rouhani hefur verið lýst sem hófsömum leiðtoga. Í kosningabaráttunni hét hann því að bæta samskipti við Vesturlönd og borgararéttindi innanlands.