Islam Karimov
1. forseti Úsbekistans (1938-2016) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Islam Abdúganjevítsj Karimov (30. janúar 1938 – 2. september 2016[1][2]) var úsbeskur stjórnmálamaður sem var fyrsti forseti lýðveldisins Úsbekistans frá sjálfstæði ríkisins frá Sovétríkjunum árið 1991. Fyrir hrun Sovétríkjanna hafði Karimov verið aðalritari landsdeildar Kommúnistaflokksins í Úsbekistan. Hann hélt völdum í landinu eftir sjálfstæði þess og stýrði því allt til dauðadags árið 2016. Karimov var einræðisherra og stjórn hans var alræmd fyrir mannréttindabrot og harðræði gegn íbúum landsins.
Staðreyndir strax Forseti Úsbekistans, Forsætisráðherra ...
Islam Karimov Ислом Каримов | |
---|---|
Forseti Úsbekistans | |
Í embætti 1. september 1991 – 2. september 2016 | |
Forsætisráðherra | Abdulhashim Mutalov (1992–1995) Oʻtkir Sultonov (1995–2003) Shavkat Mirziyoyev (2003–2016) |
Varaforseti | Shukrullo Mirsaidov (1990–1992) |
Eftirmaður | Shavkat Mirziyoyev |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 30. janúar 1938 Samarkand, úsbeska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Látinn | 2. september 2016 (78 ára) Taskent, Úsbekistan |
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn (2006–2016) Lýðræðisflokkur alþýðunnar (1991–2006) Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna (fyrir 1991) |
Maki | Natalía Kútsjmí (skilin) Tatíana Karimova (1967–2016) |
Börn | 3 |
Undirskrift |
Loka