Jiang Zemin
Fyrrum leiðtogi Alþýðulýðveldisins Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jiang Zemin (17. ágúst 1926 – 30. nóvember 2022) var kínverskur stjórnmálamaður og meginleiðtogi „þriðju valdakynslóðar“ kommúnistaflokks Alþýðulýðveldisins Kína. Hann var framkvæmdastjóri flokksins 1989-2002, forseti Alþýðulýðveldisins 1993- 2003, og formaður Hermálanefndar flokksins 1989-2004.
- Þetta er kínverskt nafn: kenni- eða fjölskyldunafnið er Jiang, eiginnafnið er Zemin.
Jiang Zemin 江泽民 | |
---|---|
Aðalritari kínverska kommúnistaflokksins | |
Í embætti 24. júní 1989 – 15. nóvember 2002 | |
Forveri | Zhao Ziyang |
Eftirmaður | Hu Jintao |
Forseti Alþýðulýðveldisins Kína | |
Í embætti 27. mars 1993 – 15. mars 2003 | |
Forsætisráðherra | Li Peng Zhu Rongji |
Varaforseti | Rong Yiren Hu Jintao |
Forveri | Yang Shangkun |
Eftirmaður | Hu Jintao |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 17. ágúst 1926 Yangzhou, Kína |
Látinn | 30. nóvember 2022 (96 ára) Sjanghæ, Kína |
Dánarorsök | Hvítblæði og fjöllíffærabilun[1] |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Kína |
Maki | Wang Yeping (g. 1949) |
Börn | Jiang Mianheng, Jiang Miankang |
Starf | Rafvirki, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Jiang Zemin gekk til liðs við Kommúnistaflokkinn á námsárum árið 1946. Hann útskrifaðist úr rafmagns- og vélaverkfræðideild Sjanghæ Jiaotong-háskóla árið 1947. Árið 1955 hlaut Jiang ársstarfsþjálfun í „Jósef Stalín-bílaverksmiðjunum“ („ZiL“) í Moskvu, Sovétríkjunum. Næstu tvo áratugi gegndi Jiang ýmsum störfum í iðnaði Sjanghæborgar. Að endingu tók hann við opinberum embættum í Wuhan-borg og höfuðborginni Beijing, en þar varð hann ráðherra rafmagnsframleiðslu 1982—1985. Sama ár tók hann sæti í miðstjórn kommúnistaflokksins og gegndi því til 1987. Árið 1985 fór Jiang aftur til Sjanghæ, þar sem hann gegndri stöðu borgarstjóra til 1987 og stöðu aðalritara flokksins í borginni. Hann var kjörinn í miðstjórn kommúnistaflokksins á 12. – 15. flokksþinginu og kjörinn í Politburo á 13.- 15. flokkþinginu. Árið 1989 var Jiang kjörinn aðalritari miðstjórnarinnar og formaður hermálanefndar flokksins. Hann komst þá til valda í kjölfar óeirðanna á Torgi hins himneska friðar er hann tók við af Zhao Ziyang sem þótti taka of vægt á mótmælendunum. Jiang varð í raun leiðtogi Kína árið 1990 vegna elli leiðtogans Deng Xiaoping. Jiang var kjörinn forseti Alþýðulýðveldisins Kína árið 1993 og sat í embætti til ársins 2003. Hann sagði af sér sem formaður hermálanefndarinnar árið 2004.
Undir forystu hans upplifði Alþýðulýðveldið Kína gríðarlegar efnahagsumbætur; friðsamlega yfirtöku á stjórnun Hong Kong frá Bretlandi og Makaó frá Portúgal; og bætt samskipti við umheiminn. Á sama tíma hélt kommúnistaflokkurinn fast í stjórnartaumana. Jiang hefur verið gagnrýndur fyrir að vera of annt um persónulega ímynd sína heima fyrir, og fyrir linkind gagnvart Rússlandi og Bandaríkjunum erlendis. Þá hefur hann verið gagnrýndur fyrir veika kennismíð hans byggðum á marxisma. Sumir harðlínumenn í röðum kommúnista telja að á valdatíma Jiang hafi hreinn kapítalismi verið lögleiddur í Kína.