Jimmy Carter
39. forseti Bandaríkjanna / From Wikipedia, the free encyclopedia
James Earl „Jimmy“ Carter, Jr. (fæddur 1. október 1924) er bandarískur stjórnmálamaður úr Demókrataflokknum. Hann var 39. forseti Bandaríkjanna á árunum 1977-1981 og vann friðarverðlaun Nóbels árið 2002.
Jimmy Carter | |
---|---|
Forseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 20. janúar 1977 – 20. janúar 1981 | |
Varaforseti | Walter Mondale |
Forveri | Gerald Ford |
Eftirmaður | Ronald Reagan |
Fylkisstjóri Georgíu | |
Í embætti 12. janúar 1971 – 14. janúar 1975 | |
Vararíkisstjóri | Lester Maddox |
Forveri | Lester Maddox |
Eftirmaður | George Busbee |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 1. október 1924 (1924-10-01) (99 ára) Plains, Georgíu, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn |
Maki | Rosalynn Smith (g. 1946; d. 2023) |
Börn | 4 |
Háskóli | Bandaríski flotaskólinn |
Starf | Bóndi, stjórnmálamaður |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (2002) |
Undirskrift |
Jimmy Carter var kjörinn forseti í kosningunum 1976, þar sem hann sigraði sitjandi forsetann Gerald Ford. Ford hafði áður verið varaforseti en hafði tekið við forsetaembættinu af Richard Nixon sem sagði af sér vegna Watergatemálsins. Carter náði kjöri á forsetastól sem pólitískur utangarðsmaður sem var ósnertur af hneykslismálum sem höfðu sett bletti á síðustu ríkisstjórnir landsins. Þrátt fyrir að koma þannig í Hvíta húsið með ferskum andvara glataði Carter smám saman vinsældum sínum vegna versnandi efnahagsástands í kjölfar olíukreppunnar 1979 og þjóðarauðmýkinga á borð við innrás Sovétmanna í Afganistan og gíslatökuna í Teheran. Þessir erfiðleikar stuðluðu að því að Carter tapaði endurkjöri á móti Ronald Reagan, frambjóðanda Repúblikana, í forsetakosningunum 1980.
Frá því að forsetatíð hans lauk hefur Carter unnið að margvíslegu friðar- og líknarstarfi sem varð til þess að hann vann friðarverðlaun Nóbels árið 2002. Forsetatíð Carters hefur almennt ekki fengið góð eftirmæli en hann hefur bætt ímynd sína verulega og öðlast aukna virðingu með störfum sínum að henni lokinni.