Rosalynn Carter
Bandarísk forsetafrú / From Wikipedia, the free encyclopedia
Eleanor Rosalynn Carter (f. Smith; 18. ágúst 1927 – 19. nóvember 2023) var Bandaríkjakona sem var forsetafrú Bandaríkjanna frá 1977 til 1981 sem eiginkona Jimmy Carter forseta. Hún hefur verið talskona fjölmargra málefna í gegnum áratugina, sér í lagi geðheilbrigðismálefna. Carter var virk í stjórnmálum á forsetatíð eiginmanns síns og var vön að mæta á ríkisstjórnarfundi í Hvíta húsinu, auk þess sem hún var einn nánasti ráðgjafi forsetans. Líkt og Jimmy Carter var Rosalynn ein af lykilmeðlimum góðgerðasamtakanna Habitat for Humanity.
Staðreyndir strax Forsetafrú Bandaríkjanna, Forseti ...
Rosalynn Carter | |
---|---|
Forsetafrú Bandaríkjanna | |
Í embætti 20. janúar 1977 – 20. janúar 1981 | |
Forseti | Jimmy Carter |
Forveri | Betty Ford |
Eftirmaður | Nancy Reagan |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 18. ágúst 1927(1927-08-18) Plains, Georgíu, Bandaríkjunum |
Látin | 19. nóvember 2023 (96 ára) Plains, Georgíu, Bandaríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn |
Maki | Jimmy Carter (g. 1946) |
Börn | 4 |
Undirskrift |
Loka