Jóhanna Sigurðardóttir
íslensk stjórnmálakona og forsætisráðherra (2009-2013) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jóhanna Sigurðardóttir (fædd 4. október 1942) er fyrrum forsætisráðherra Íslands. Jóhanna sat á þingi í 35 ár samfleytt frá árinu 1978 til 2013. Hún var félagsmálaráðherra árin 1987-1994 og 2007-2009. Í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008 varð hún forsætisráðherra í febrúar árið 2009 og var skömmu síðar kjörin formaður Samfylkingarinnar. Hún er fyrsti kvenkyns forsætisráðherra Íslands og fyrsta opinberlega samkynhneigða konan sem gegnir starfi forsætisráðherra á heimsvísu. Árið 2009 valdi Forbes hana á lista yfir 100 valdamestu konur heims.[1]
Staðreyndir strax Fæðingardagur:, Fæðingarstaður: ...
Jóhanna Sigurðardóttir (JóhS) | |
Fæðingardagur: | 4. október 1942 (1942-10-04) (81 árs) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Flokkur: | Samfylkingin |
Þingsetutímabil | |
1978-1980 | í Landsk. fyrir Alþfl. ✽ |
1980-1987 | í Landsk. fyrir Alþfl. |
1987-1994 | í Reykv. fyrir Alþfl. ✽ |
1994-1995 | í Reykv. fyrir Ufl. |
1995-1999* | í Reykv. fyrir Þjóðv. |
1999-2003 | í Reykv. fyrir Samf. |
2003-2007 | í Reykv. s. fyrir Samf. |
2007-2013 | í Reykv. n. fyrir Samf. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1979 | 2. varaforseti neðri deildar |
1983-1984 | 1. varaforseti neðri deildar |
2003-2007 | 4. varaforseti Alþingis |
1987-1994 2007-2009 |
Félagsmálaráðherra Félagsmálaráðherra |
2009-2013 | Forsætisráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða | |
*Seinni hluta kjörtímabilsins tilheyrði hún þingflokki jafnaðarmanna. |
Loka